Exhaust Repair Paste er gert fyrir einfaldar og ódýrar flýtiviðgerðir á útblásturskerfum. Exhaust Repair Paste inniheldur ekki asbest eða leysiefni, mengar ekki umhverfið, er hitaþolið og gefur gashelda þéttingu á lítil göt og sprungur í útblásturskerfinu.
Eiginleikar:
Notagildi: Notað til að stöðva leka og þétta lítil göt og sprungur í útblásturskerfum.
Leiðbeiningar: Hreinsið óhreinindi og ryð vandlega af staðnum sem á að gera við. Látið vélina ganga þar til útblásturskerfið hefur hitnað.
Stöðvið vélina. Vætið staðinn sem á að gera við með vatni svo og þéttiefnið Exhaust Repair Paste og smyrjið deiginu á skemmda flötinn. Sléttið rakt deigið. Deigið harðnar vegna hitans frá útblásturskerfinu eða meðan vélin gengur lausagang.
Magn: 200g
Staðsetning | Lagerstaða? |
---|---|
Klettháls 5 (lager) | |
Bíldshöfði 10 | |
Akureyri | |
Hafnarfjörður | |
Selfoss |