Mótorolía TopTec 4200 er hátækni, lágnúnings vélarolía sem nota má allan ársins hring á allar bensín- og dísilvélar með eða án smáagnasíu (DPF). (Undanskildar eru R5 og V10 TDI vélar, framleiddar fyrir 06.2006.) Olían uppfyllir evrópska Euro IV og V mengunarstaðla. Hún er búin til úr nýjustu bætiefnum og óhefðbundnum olíugrunni, framleiddum með vetniskljúfandi aðferðum sem veldur því að hún smýgur vel og dregur úr sliti og eldsneytisnotkun. Með Mótorolíu TopTec 4200 er jafnvel hægt að fresta olíuskiptum (til allt að 30-50.000 km fresti ef framleiðandi leyfir). Olían hentar einnig metanvélum (CNG/LPG).
Hentar bensín- og dísilvélum hvort sem langur tími líður á milli smurninga eða ekki. Hentar bæði bifreiðum sem eru með og án dísilsmáagnasíu (DPF) sem margir bílaframleiðendur eru farnir að krefjast.
Eiginleikar:
Notkun: Fylgja skal notkunarleiðbeiningum vélaframleiðenda varðandi meðhöndlun og smurningu véla.
ATH: Full virkni og vörn fyrir dísilsmáagnasíuna er einungis tryggð ef vörunni er ekki blandað við aðrar olíur.
ATH fyrir verkstæði: Olíuleifar í kerfi mega ekki vera meira en 5% til að olían teljist óblönduð.
Einnig til undir vörunúmeri LM3707
Staðsetning | Lagerstaða? |
---|---|
Klettháls 5 (lager) | |
Bíldshöfði 10 | |
Akureyri | |
Hafnarfjörður | |
Selfoss |